Vetrarflug Voigt Travel hafin og sumarferðirnar auglýstar
Fyrsta flugvél vetrarins á vegum hollensku ferðaskrifstofunnar Voigt Travel lenti á Akureyrarflugvelli síðastliðinn laugardag. Voigt Travel hefur staðið fyrir vetrarflugi til Akureyrar frá árinu árið 2020 og var þetta fyrsta flug af 10 þennan veturinn, en flogið er með hollenska flugfélaginu Transavia.
29.01.2025
Fyrsta flugvél vetrarins á vegum hollensku ferðaskrifstofunnar Voigt Travel lenti á Akureyrarflugvelli síðastliðinn laugardag. Voigt Travel hefur staðið fyrir vetrarflugi til Akureyrar frá árinu árið 2020 og var þetta fyrsta flug af 10 þennan veturinn, en flogið er með hollenska flugfélaginu Transavia. Farþegar Voigt Travel dvelja flestir á Norðurlandi í heila viku og eru duglegir að nýta sér fjölbreytta afþreyingu og aðra þjónustu á meðan á dvölinni stendur.
Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnastjóri Flugklasans, fór með vél Transavia frá Akureyri til Hollands. Þar tók hann þátt í „SummerEvent“ - viðburði sem Voigt Travel hélt nálægt Utrecht síðasta sunnudag, ásamt fulltrúa GeoTravel frá Mývatnssveit. Tilgangurinn viðburðarins var að hvetja fólk til að nýta sér pakkaferðir Voigt Travel með beinu flugi á áfangastaði þeirra í Norður-Evrópu. Vel á fjórða hundrað manns heimsóttu viðburðinn til að fræðast m.a. um áfangastaðinn Norðurland og hvað þar er í boði. Gestirnir voru áhugasamir og viðburðurinn tókst vel í alla staði.

