Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Viðurkenningar á Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi 2026

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi var haldin á Norðurhjarasvæðinu í gær. Yfir daginn heimsóttu þátttakendur ferðaþjónustuaðila á svæðinu og kynntust fjölbreyttri starfsemi þeirra, sögu og nærumhverfi. Deginum lauk með hátíðarkvöldverði og skemmtun.

Venju samkvæmt voru veittar viðurkenningar í þremur flokkum: Fyrirtæki ársins, Hvatningarverðlaun og Störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi. Með viðurkenningunum vill Markaðsstofa Norðurlands vekja athygli á því öfluga starfi sem unnið er í ferðaþjónustu á svæðinu og heiðra þau sem hafa skarað fram úr í uppbyggingu, þróun og samstarfi.

Í ár hlutu eftirfarandi aðilar viðurkenningar:

Fyrirtæki ársins

Viðurkenningin Fyrirtæki ársins er veitt fyrirtæki sem er búið að slíta barnsskónum og hefur skapað sér sterka stöðu á markaði. Fyrirtækið hefur unnið að stöðugri uppbyggingu, vöruþróun og nýsköpun og er með höfuðstöðvar á Norðurlandi.

Í ár hlýtur Arctic Sea Tours á Dalvík viðurkenninguna. Fyrirtækið hefur boðið upp á hvalaskoðun frá árinu 2009 og unnið að því að þróa þjónustu sína og auka fjölbreytni ferðanna, með öryggi og gæði í fyrirrúmi. Í dag gerir það út tvo eikarbáta og tvo RIB-báta, en nýjasta viðbótin er Rökkur sem bættist í flotann vorið 2024. Fyrirtækið var jafnframt fyrst á Íslandi til að taka í notkun dúandi farþegasæti í RIB-bátum, sem draga úr höggum vegna ölduhreyfinga og er gott dæmi um metnaðinn sem hefur einkennt uppbyggingu Arctic Sea Tours.

Arctic Sea Tours hefur lagt áherslu á að bjóða upp á hvalaskoðun allt árið og þannig lagt sitt af mörkum til að efla vetrarferðaþjónustu á Norðurlandi. Framboð afþreyingar yfir fleiri mánuði ársins styrkir svæðið sem áfangastað og skapar tækifæri fyrir aðra þjónustu í nærumhverfinu. Þessi áhersla skiptir miklu máli í uppbyggingu ferðaþjónustu á Norðurlandi.

Áhugi og þekking á lífríkinu birtast einnig í miðlun fyrirtækisins á samfélagsmiðlum. Þar eru sagðar sögur af einstökum hvölum sem áhöfnin þekkir með nafni og hefur fylgst með árum saman. Endurkomu þeirra í fjörðinn er fagnað og fréttir af andláti þeirra sömuleiðis syrgt. Þessi persónulega nálgun ber vitni um tengslin sem hafa myndast við lífríkið í gegnum áralangt starf og gefur innsýn í þann áhuga sem liggur að baki starfseminni.


Freyr Antonsson og Silja Pálsdóttir, eigendur Arctic Sea Tours

Störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi

Viðurkenninguna fyrir störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi fær einstaklingur sem hefur tekið þátt í uppbyggingu ferðaþjónustu í landshlutanum með metnað að leiðarljósi og hefur jafnframt starfað beint eða óbeint fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Í ár er það Elín S. Sigurðardóttir, sem veitt hefur Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi forstöðu um árabil, sem hlýtur viðurkenninguna.

Heimilisiðnaðarsafnið er eina safn sinnar tegundar hérlendis og gegnir margþættu hlutverki, við sýningahald, rannsóknir, fræðslu og miðlun menningar. Lögð er áhersla á að veita innsýn í vinnu kvenna og karla sem fram fór á heimilum og var stór þáttur hins daglega lífs. Um 4000 gestir heimsækja safnið á ári hverju og eru stór hluti þeirra innlendir og erlendir ferðamenn.

Elín hefur verið formaður stjórnar og gegnt starfi forstöðumanns Heimilisiðnaðarsafnsins síðan 1993. Hún hefur unnið metnaðarfullt starf fyrir safnið og verið umhugað um að safnið starfi samkvæmt skilyrðum um viðurkennd söfn. Hún hefur jafnframt tekið virkan þátt í samstarfi safna og safnafólks, sem og í starfi Markaðsstofu Norðurlands. Elín á óumdeilanlega stærstan þátt í að tekist hefur að byggja upp þá menningarstofnun sem Heimilisiðnaðarsafnið er, sem einnig hefur fest sig í sessi sem afar áhugaverður viðkomustaður fyrir ferðamenn.


Elín S. Sigurðardóttir, forstöðukona Heimilisiðnaðarsafnsins

Hvatningarverðlaun

Hvatningarverðlaunin í ár hlýtur Daníel Hansen fyrir uppbyggingu og starf Fræðaseturs um forystufé á Svalbarði í Þistilfirði. Þar hefur hann staðið að áhugaverðri upplifun sem tengir saman íslenska búskaparhefð, fræðslu og menningu og gefur gestum innsýn í sérstæðan þátt í sögu og lífi þjóðarinnar.

Forystufé er einstakur stofn sem hefur fylgt Íslendingum um aldaraðir og verið metið fyrir ratvísi, veðurglöggni og hæfileikann til að leiða fjárhópinn í öruggt skjól við erfiðar aðstæður. Á Fræðasetrinu er þessum arfi haldið til haga með söfnun sagna, mynda og fróðleiks sem miðlað er til gesta.

Starfsemin nær þó lengra en fræðslan ein. Á staðnum er einnig kaffihús, listsýningar og verslun þar sem finna má vörur unnar úr afurðum forystufjár. Þannig tengjast saga, handverk og nýting staðbundinna afurða og verða hluti af upplifun þeirra sem sækja setrið heim.

Með starfi sínu hefur Daníel sýnt hvernig þekking og sérstaða úr heimabyggð geta orðið að áhugaverðu aðdráttarafli fyrir ferðamenn. Fræðasetrið auðgar framboð menningartengdrar ferðaþjónustu á Norðurlandi og gefur gestum ástæðu til að staldra við í Þistilfirði og kynnast svæðinu betur. Með Hvatningarverðlaununum viljum við vekja athygli á þessu starfi og hvetja til áframhaldandi uppbyggingar.


Daníel Hansen, forstöðumaður Fræðaseturs um Forystufé ásamt Hjalta Páli og Katrínu frá Markaðsstofu Norðurlands

Markaðsstofa Norðurlands óskar viðtakendum viðurkenninganna innilega til hamingju.