Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Viðvera starfsmanna um allt Norðurland í október

Hægt verður að hitta starfsmenn Markaðsstofu Norðurlands um allt Norðurland í október, þar sem þeir verða með viðveru á nokkrum stöðum næstu tvær vikurnar.

Hægt verður að hitta starfsfólk Markaðsstofu Norðurlands um allt Norðurland í október, þar sem þau verða með viðveru á nokkrum stöðum næstu tvær vikurnar. Þau Rögnvaldur Már Helgason og Katrín Harðardóttir verða á ferðinni og bjóða fólki í ferðaþjónustu að koma til að spjalla um allt sem henni tengist, þeirra fyrirtækjum og störfum Markaðsstofunnar. Þau verða bæði saman á ferðinni, en einnig sitt í hvoru lagi. Þannig fer Katrín til Siglufjarðar þriðjudaginn 10. október og Rögnvaldur verður á Sauðárkróki og Hvammstanga þann 12. október.

Rögnvaldur Már er verkefnastjóri útgáfu og almannatengsla og Katrín er verkefnastjóri ferðaskrifstofa og þróunar. Ekki er nauðsynlegt að bóka fundi sérstaklega, það er nóg að líta við. Þau verða bæði saman á ferðinni, en einnig í sitt hvoru lagi.

Viðverutímarnir og staðsetningar eru eftirfarandi:

Miðvikudagur 4. október

  • Húsavík,Stéttin - frá 9-11.
  • Raufarhöfn, skrifstofa SSNE - frá 14-16

Fimmtudagur 5. október

  • Þórshöfn, Kistan -  frá 8:30 - 10:30
  • Reykjahlíð, skrifstofa Þingeyjarsveitar - frá 13 - 15.

Þriðjudagur 10. október - Katrín

  • Siglufjörður, skrifstofa SSNE - 12:30 - 14:30 - ATH FRESTAÐ VEGNA SLÆMRAR VEÐURSPÁR

Fimmtudagur 12. október - Rögnvaldur Már