Hvítserkur
Hvítserkur er 15 metra hár klettadrangur við austanvert Vatnsnes og eitt þekktasta kennileiti Norðurlands. Kletturinn hefur mótast af ágangi sjávar í gegnum aldirnar og þykir líkjast risavaxinni veru sem drekkur úr sjónum.
Hvítserkur er vinsæll áningarstaður fyrir náttúruunnendur og fuglalíf er mikið á svæðinu. Einnig er hægt að ganga niður í fjöruna og skoða klettinn úr návígi.
Samkvæmt þjóðsögu er Hvítserkur steinrunninn tröllkarl frá Ströndum sem ætlaði að brjóta kirkjuklukkur Þingeyrarkirkju. Hann náði ekki áfangastað áður en sólin reis og breyttist því í stein í fyrstu geislum morgunsins.