Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Bjartasta helgi ársins á Norðurlandi

Þann 21. júní n.k. verða sumarsólstöður og þá nýtur miðnætursólin sín hvað best á Norðurlandi. Birtan nær hámarki og landslagið baðar sig í hlýjum gullnum bjarma langt fram yfir miðnætti. Á þessum árstíma er sérstaklega gaman að njóta útivistar, upplifa náttúruna í kvöldsólinni og taka þátt í fjölbreyttum viðburðum sem framundan eru víða um Norðurland.

Þessi árstími hefur sérstakan sess í hugum margra og víða um Norðurland er honum fagnað með fjölbreyttum viðburðum, útihátíðum og samkomum helgina 19.–21. júní. Hér fyrir neðan má finna nokkra af þeim viðburðum sem framundan eru:

  • Sumarsólstöðuhátíð í Grímsey

Í Grímsey verður sumarsólstöðum fagnað með fjölbreyttri dagskrá um helgina. Á dagskrá eru viðburðir fyrir alla aldurshópa og tækifæri til að upplifa sumarsólstöður á heimskautsbaugnum. Nánar um sumarsólstöðuhátíðina hér

  • Sumarsólstöðuhátíð á Kópaskeri

Á Kópaskeri verður boðið upp á fjölbreytta hátíðardagskrá með tónlist, menningarviðburðum og afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Í ár verður jafnframt minnst þess að 50 ár eru liðin frá Kópaskersskjálftanum árið 1976. Nánar um hátíðina hér.

  • Arctic Open 

Arctic Open golfmótið fer fram á Akureyri um sumarsólstöður. Mótið hefur verið haldið um árabil og laðar að sér kylfinga hvaðanæva að sem njóta þess að leika golf á björtustu dögum ársins. Nánar um golfmótið hér

  • Sólstöðuhlaupið 

Sólstöðuhlaupið í Eyjafirði fer fram kvöldið 20. júní. Hlaupið hefst frá Svalbarðseyri og liggur um fallegt landslag Vaðlaheiðar áður en komið er í mark við Skógarböðin. Þrjár vegalengdir eru í boði og geta hlauparar því valið leið við sitt hæfi. Nánar um hlaupið hér.

Fleira á dagskrá

Fjölmargir aðrir viðburðir verða einnig á dagskrá sömu helgi víða um Norðurland. Hinsegin hátíð Norðurlands fer fram með fjölbreyttri dagskrá, auk þess sem Hrísey Pride verður haldið fjórða árið í röð með skrúðgöngu, tónlistaratriðum og viðburðum fyrir alla fjölskylduna.

Á Hofsósi verður hátíðin Hofsós heim haldin þar sem heimamenn og gestir koma saman og njóta fjölbreyttrar dagskrár og samveru. Í Hörgársveit verða Sæludagar haldnir með fjölbreyttum viðburðum fyrir alla fjölskylduna og á Akureyri verður Flugdagur Flugsafns Íslands. Þar verður fjölbreytt dagskrá í boði, meðal annars í samstarfi við Landhelgisgæslu Íslands sem fagnar 100 ára afmæli á árinu, auk glæsilegrar flugsýningar á Akureyrarflugvelli.

Þetta er aðeins hluti af því sem er í boði á Norðurlandi þessa helgi og því tilvalið að kynna sér viðburðadagatalið og sjá hvað er framundan.