Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Skráning hafin í Arctic Coast Way

Opnað hefur verið fyrir skráningu fyrirtækja í Arctic Coast Way/Norðurstrandarleið, en ferðamannaleiðin verður formlega opnuð þann 8. júní næstkomandi á Degi hafsins.

Opnað hefur verið fyrir skráningu fyrirtækja í Arctic Coast Way/Norðurstrandarleið, en ferðamannaleiðin verður formlega opnuð þann 8. júní næstkomandi á Degi hafsins. Arctic Coast Way er spennandi nýtt verkefni í ferðaþjónustu sem á að skapa nýtt aðdráttarafl á Norðurlandi og kynna landshlutann sem einstakan áfangastað.

Ferðamannavegir eru þekktir í ferðaþjónustu víða um heim, sem tæki til þess að beina ferðamönnum eftir ákveðnum leiðum um skilgreind svæði. Norðurstrandarleið fer um alla strandlengjuna, frá Hvammstanga í vestri til Bakkafjarðar í austri. Til þess að taka þátt í verkefninu þurfa ferðaþjónustuaðilar, sveitarfélög og þorpin eða bæirnir á leiðinni að uppfylla ákveðin skilyrði, sem byggjast meðal annars að miklu leyti á staðsetningu. Þá er grunnforsenda fyrir skráningu í ACW að viðkomandi fyrirtæki sé skráð í samstarf við Markaðsstofu Norðurlands. Hér má skoða skjal um þátttökuskilyrði.

Smelltu hér til þess að opna umsóknareyðublaðið.