Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Veðrið á Íslandi er óútreiknanlegt allt árið um kring svo fólk þarf að vera viðbúið snöggum breytingum, jafnvel oft á dag. Á Norðurlandi er fjölbreytt vetrarafþreying í boði og má þar helst nefna snjósleðaferðir, skíðasvæðin á Noðrurlandi, gönguskíði, hestaferðir og heit böð. Janúar er einnig góður tími til að fara í norðurjósaskoðun.  

Þegar kemur að klæðnaði er aðal málið að pakka nokkrum ólíkum lögum af fötum. Hér er listi af hlutum sem þú ættir að taka með þér, óháð því á hvaða tíma árs þú ert á ferðinni. Mikilvægt er að fylgjast vel með veðurspá og færð á vegum áður en lagt er af stað. 

Hvað þarf ég að taka með?

Veðurfar

Hiti -2°C / 28.4F

Meðaltal - efri mörk 1°C / 33.8F

Meðaltal - neðri mörk -6°C / 21.2F

Úrkoma 55mm/dag

Snjódagar 11

Tímar af dagsbirtu 4

  • Hlýjan og einangrandi jakka eða úlpu
  • Hlý lög af fötum (ullarpeysu, dún-/primaloftjakka, hlýir sokkar o.þ.h.)
  • Brodda eða skó með stömum sóla (jafnvel þótt þú sért bara í bæjarferð)
  • Flíspeysa/létt ullarpeysa
  • Regn-/vindheldur jakki og buxur
  • Sterkir gönguskór með góðum sóla
  • Sólgleraugu
  • Vettlingar
  • Trefill
  • Húfa
  • Hlý undirföt/ullarnærföt (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Vatnsheldir gönguskór (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Hlýir sokkar eða göngusokkar(sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Sundföt
  • Fljótþornandi handklæði (sérstaklega ef farið er í náttúrulaugar og uppsprettur – hægt er að leigja handklæði í flestum sundlaugum)

 

 

 

Janúar er tími fyrir

Upplifðu aðra mánuði