Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Í júní er fyrst hægt að reikna með alvöru sumri, þótt það sé vissulega ekki öruggt þar sem það er enn möguleiki á næturfrosti. Það er fátt sem jafnast á við bjartar sumarnætur og það er einstök upplifun að fylgjast með sólinni tylla sér á sjóndeildarhringinn áður en hún rís að nýju. Hefur þú prófað að vera við Heimskautsbaug þegar sólin er hæst á lofti? 
Sumarsólstöður eru á bilinu 20. - 22. júní.

Veðurfar

Hiti 9°C / 48.2F

Meðaltal - efri mörk 13°C / 55.4F

Meðaltal - neðri mörk 6°C / 42.8F

Úrkoma 29mm/dag

Tímar af dagsbirtu 23

Hvað þarf ég að taka með?

  • Flíspeysa/létt ullarpeysa
  • Létt lög af fötum (síðermaboli, létta jakka o.þ.h.)
  • Regn-/vindheldur jakki og buxur
  • Sterkir gönguskór með góðum sóla
  • Sólgleraugu
  • Vettlingar
  • Trefill
  • Húfa
  • Hlý undirföt/ullarnærföt (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Vatnsheldir gönguskór (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Hlýir sokkar eða göngusokkar (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Sundföt
  • Fljótþornandi handklæði (sérstaklega ef farið er í náttúrulaugar og uppsprettur – hægt er að leigja handklæði í flestum sundlaugum)
  • Skordýrafælur/flugnanet
  • Svefngrímu
  • Sólavörn

 

Júní er tími fyrir

Upplifðu aðra mánuði

Viðburðir