Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Haustlitirnir skarta sínu fegursta í september og tilvalið að bregða sér í haustlitaferð. Fegurðin á Demantshringnum er engri lík á þessum árstíma og ekki skemmtir fyrir ef norðurljósin láta sjá sig og toppa þannig daginn þinn. 
Hafið í huga að veður getur breyst hratt og mikilvægt er að fylgjast vel með veðurspá og færð á vegum og taka stöðuna reglulega. September getur bæði verið vinda- og rigningasamur svo mundu eftir hlífðarfötum. Jafndægur að hausti eru 22.-23. September.

Veðurfar

Hiti 6°C / 42.8F

Meðaltal - efri mörk 10°C / 50F

Meðaltal - neðri mörk 4°C / 39.2F

Úrkoma 39mm/dag

Snjódagar 1

Tímar af dagsbirtu 11

Hvað þarf ég að taka með? 

  • Hlýjan og einangrandi jakka eða úlpu
  • Hlý lög af fötum (ullarpeysu, dún-/primaloftjakka, hlýir sokkar o.þ.h.)
  • Light layers (long sleeve tops, soft shells etc.)
  • Brodda eða skó með stömum sóla (jafnvel þótt þú sért bara í bæjarferð)
  • Flíspeysa/létt ullarpeysa
  • Regn-/vindheldur jakki og buxur
  • Sterkir gönguskór með góðum sóla
  • Sólgleraugu
  • Vettlingar
  • Trefill
  • Húfa
  • Hlý undirföt/ullarnærföt (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Vatnsheldir gönguskór (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Hlýir sokkar eða göngusokkar(sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Sundföt
  • Fljótþornandi handklæði (sérstaklega ef farið er í náttúrulaugar og uppsprettur – hægt er að leigja handklæði í flestum sundlaugum)
  • Sólarvörn 

 

September er tími fyrir

Upplifðu aðra mánuði

Viðburðir